Skilmálar

Afgreiðsla pantana:
Allar pantanir eru afhentar á föstudögum. Sendar vörur eru afhentar milli 16:00-17:00. Ef pöntun er sótt er hægt að sækja hana milli 12:00-17:00 á föstudögum. Hægt er að sækja á öðrum tímum með því að láta vita í „Skýring með pöntun“ þegar pöntun er gerð. Við sendum aðeins á höfuðborgarsvæðið og suðurnes. Mismunandi verð er fyrir mismunandi staðsetningar.

Greiðslur:
Allar greiðslur í gegnum vefverslun okkar eru í gegnum örugga greiðslusíðu og geymum við ekki kortanúmer greiðanda. Sé varan sótt er hægt að óska eftir því að staðgreiða vöruna.

Skilafrestur:
Öllum vörum er hægt að skila og annað hvort skipta í aðra eða fá inneignarnótu. Varan þarf að vera ónotuð og koma í upprunalegum pakkningum. Skilafrestur er 3 dagar frá því að vara er afhent. Hafi verið greitt með kreditkorti er endurgreiðsla lögð aftur inná sama kort.

Persónuvernd:
Farið er með allar persónuupplýsingar sem seljandi móttekur sem algjört trúnaðarmál og þær aðeins nýttar í þeim tilgangi að klára viðskiptafærslu. Kaupanda gefst hins vegar kostur á að fá send tilboð í tölvupósti og mun seljandi þá aðeins nota þær upplýsingar sem til þess þarf s.s. póstfang.

Úrlausn vafamála
Ávallt skal reyna að leysa öll mál á sem einfaldastan hátt. Ef það er ekki mögulegt er hægt að bera málið undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárskaupa sem hýst er af Neytendastofu.. Sem síðasta úrræði er hægt að fara með málið fyrir dómstóla. Það skal gera í íslenskri lögsögu og í lögsagnarumdæmi seljanda .

Þjónusta og upplýsingar
Kaupanda er bent á að senda tölvupóst með öllum þeim upplýsingum er varða kaupin á sohoverslun@soho.is til að fá úrlausn á því sem hann vantar. Kaupandi getur einnig leitað í verslun okkar til að fá svör eða einfaldlega hringt í aðalsímanúmer okkar 421 7646 þar sem honum verður vísað á réttan stað.

Útgáfa skilmála númer: 1.0